ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Giants skellti meisturunum á þeirra eigin heimavelli

Ljóst hvaða lið keppa til úrslita í báðum deildum í NFL
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:57 › 16. janúar 2012
Eli Manning sigurreifur eftir leikinn á Lambeau Field í gærkvöldi.

Eli Manning sigurreifur eftir leikinn á Lambeau Field í gærkvöldi. Mynd Reuters

New York Giants tók sig til og valtaði yfir ríkjandi meistara NFL-deildarinnar, Green Bay Packers, 37-20, þegar liðin mættust í undanúrslitum Þjóðardeildarinnar í gærkvöldi. Packers var langbesta liðið í deildakeppninni, vann fimmtán af sextán leikjum sínum og var talið líklegast til að vinna Superbowl annað árið í röð.

Vörn Giants hefur heldur betur vaknað til lífsins í úrslitakeppninni en í fyrstu umferð skoraði Atlanta Falcons ekki stig á Giants. Nú átti Aaron Rodgers, leikstjórnandi Packers, almennt talinn sá besti í deildinni, erfitt um vik gegn Giants í gær og ekki hjálpaði til að útherjar og innherjar liðsins misstu boltann úr höndum sér sjö sinnum.

Eli Manning, leikstjórnandi Giants, fór aftur á móti á kostum og kláraði 21 sendingu af 33 sem skilaði liðinu 330 jördum. Þá átti hann þrjár sendingar sem leiddu til snertimarks. Rodgers kastaði fyrir tveimur snertimörkum hjá Packers sem þurfa nú að horfa á Superbowl í sjónvarpinu.

Það er því ljóst hvaða lið mætast í úrslitum beggja deilda í NFL. San Francisco 49ers, sem unnu New Orleans Saints í leik ársins á laugardaginn, fá heimaleik gegn Giants í úrslitum Þjóðardeildar á meðan Tom Brady og félagar í New England Patriots taka á móti Baltimore Ravens í úrslitum Ameríkudeildar.

Sigurvegarar þeirra leikja mætast svo í úrslitaleiknum sjálfum, Superbowl, sem fer fram í Indianapolis þann 5. febrúar.

Hér má sjá helstu atvikin úr leik Giants og Packers í nótt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?