Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, verður með í fyrsta leik Íslands gegn Króatíu á EM í kvöld. Þetta hefur Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfest við Vísi.
Björgvin Páll hefur verið rúmliggjandi og í hálfgerðri einangrun vegna veikinda eftir að liðið lenti í Serbíu en hann hefur nú fengið grænt ljós á að spila í kvöld.
Vegna veikindanna var Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður Hauka, kallaður til og lenti hann til Serbíu í nótt. Hann verður því til taks ef Björgvini slær niður aftur.
Ljóst er að þetta eru gríðarlega góð tíðindi fyrir strákana okkar enda Björgvin verið algjör lykilmaður liðsins undanfarin fjögur ár.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
