Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tékkar unnu Þjóðverja í opnunarleik Evrópumeistaramótsins í handbolta í Serbíu nú í kvöld. Tékkar unnu leikinn með 27 mörkum gegn 24 mörkum Þjóðverja. Tékkneska liðið var yfir frá fyrstu mínútu og var staðan 14-9 í hálfleik.
Þjóðverjar náðu sér aðeins á strik í seinni hálfleik og náðu að minka muninn í eitt mark, 20 mörk gegn 19, þegar um sextán mínútur voru eftir af leiknum. Tékkar gáfu þó ekkert eftir og voru talsvert sterkari á lokamínútum leiksins og unnu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
