ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Serbar lögðu Pólverja á EM

Stóðu sig á heimavelli
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
19:44 › 15. janúar 2012
Mynd Reuters

Serbar sigruðu í kvöld Pólverja á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fram fer í Serbíu. Heimamenn sigruðu nokkuð örugglega með 22 mörkum gegn 18 mörkum Pólverja. Varnarleikur serbneska liðsins var góður og var fjögurra marka munur á liðunum í hálfleik, 11-7.

Marko Vujin og Ivan Mikcevic skoruðu flest mörk í serbneska liðinu með sex mörk hvor. Karol Bielecki var markahæstur í liði Pólverja með fjögur mörk og næstur á eftir honum var Michal Jurecki með þrjú mörk.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?