Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Leikur Svía og Makedóníumanna endaði með jafntefli í kvöld á Evrópumeistaramótinu í handbolta sem fram fer í Serbíu. Bæði lið skoruðu 26 mörk í leiknum. Liðin skiptust á um að hafa forustu í leiknum en mest munaði fjórum mörkum á liðunum þegar um fjörtíu mínútur voru liðnar af leiknum.
Markahæsti leikmaður Svía, sem voru taldir sigurstranglegri fyrirleikinn, var Niclas Ekberg með sex mörk. Sjojanche Stoilov og Stevche Alushovski voru hinsvegar markahæstir í makedónska liðinu með sjö mörk hvor.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Guðmundur áfram með Löwen
AG Kaupmannahöfn slógu Barcelona út úr meistaradeildinni
Landsliðið fer á Ólympíuleikana
Ísland sigraði Síle í öruggum leik
Jafntefli við Norðmenn
