ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Clippers vann fyrsta slaginn um Los Angeles

Kobe skoraði yfir fjörtíu stig fjórða leikinn í röð
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:08 › 15. janúar 2012
Það verður hart barist í baráttunni um Los Angeles í vetur.

Það verður hart barist í baráttunni um Los Angeles í vetur. Mynd Reuters

Los Angeles Clippers vann stóra bróður í Lakers, 102-94, þegar liðin mættust í fyrsta skipti á leiktíðinni í nótt.

Það er langt síðan stuðningsmenn liðanna hafa beðið eftir þessari viðureign með jafnmikilli eftirvæntingu en eftir góðar fjárfestingar Clippers á leikmannamarkaðinum fyrir tímabilið líta menn björtum augum á framtíðina hjá liðinu.

Leikstjórnandinn Chris Paul sem kom frá Hornets fyrir tímabilið skoraði 33 stig fyrir Clippers í nótt og hinn magnaði Blake Griffin skoraði 22 stig og tók þar að auki 14 fráköst. Chauncey Billups skoraði 19 stig.

Kobe Bryant tók sig til og skoraði 42 stig fyrir Lakers en þetta var fjórði leikurinn í röð sem hann skorar yfir fjörtíu stig í leik. Það dugði þó ekki til í nótt en fyrir leikinn gegn Clippers hafði Lakers unnið fimm leiki í röð.

Útlitið er nokkuð bjart hjá Clippers sem hefur sýnt styrk sinn að undanförnu og lagði stjörnum prýtt lið Miami Heat á miðvikudaginn, 95-89. Liðið hefur unnið sex af níu fyrstu leikjum sínum en Lakers hefur unnið níu af fyrstu fjórtán.

Hér má sjá helstu tilþrifin úr leiknum í nótt.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?