ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Veigar Páll: Eitt rauðvínsglas og tveir bjórar

Ólafi og Veigari ber ekki saman um laugardagskvöldið
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:29 › 8. september 2011
Veigar Páll í landsleik árið 2010 MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI

Veigar Páll í landsleik árið 2010 MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI

„Ég er fullorðinn maður. Eitt rauðvínsglas og tveir bjórar skipta engu fyrir leik á móti Kýpur. Ég fékk nóg og dró mig úr landsliðshópnum,“ segir Veigar Páll Gunnarsson, fótboltamaður, sem tjáir sig í dag í norskum fjölmiðlum um það hvers vegna hann spilaði ekki með landsliðinu gegn Kýpur á þriðjudagskvöldið.

Ólafur Jóhannesson tjáir sig einnig um málið, en hann segir að settar hafi verið tvær reglur sem leikmenn áttu að fara eftir á laugardagskvöldið. Önnur var sú að það var algjört áfengisbann, og hinsvegar sú að leikmenn ættu að skila sér aftur á hótelið fyrir miðnætti. Ólafur segir í viðtalinu við TV2 í dag:
„Ég sá hann á hótelbarnum þar sem hann var að drekka," sagði Ólafur.

Veigar segir að hann telji að Ólafur hafi ekki rétt á því að skipta sér af því hvað hann gerir. Hann segir í viðtalinu:
„Hann á ekki að koma upp að mér og spyrja hvað í fjandanum ég sé eiginlega að gera. „Hvað meinarðu," sagði ég og hann svaraði: „Ég sé að þú ert búinn að drekka áfengi.“

Ólafi og Veigari ber þó ekki saman um það hvort Veigar dró sig úr hópnum eða hvort hann var rekinn.

„Ég er fullorðinn maður. Eitt rauðvínsglas og tveir bjórar skipta engu fyrir leik gegn Kýpur. Ég fékk nóg og dró mig úr landsliðshópnum,“ segir Veigar Páll en Ólafur segist hafa sagt Veigari að hann yrði að fara og fengi ekki að spila.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?