Leikmenn Pepsi-deildar liðs Vals voru boðaðir á fund með stjórnarmönnum félagsins fyrir æfingu á þriðjudaginn þar sem þeim var gerð grein fyrir fjárhagsstöðu félagsins. Breytinga er að vænta á samningum leikmanna og samkvæmt öruggum heimildum DV munu leikmenn þurfa taka á sig allt að 40 prósenta launaskerðingu.
Óvíst er hvort allir leikmenn liðsins fái greitt þennan mánuðinn. Heimildir DV herma að leikmannahópurinn hafi ekki sýnt neina óánægju opinberlega en leikmönnum hafi verið nokkuð brugðið, sérstaklega fjölskyldumönnum. Óvissa ríkir innan leikmannahópsins sem leikmönnum finnst óþægileg.
Friðjón R. Friðjónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, komst ekki á fundinn vegna vinnu en hann staðfesti við DV að upp ætti að taka samninga allra leikmanna þó hann vildi ekki ræða neinar tölur.
„Það er tilgangslaust fyrir mig að neita þessu. Það var fundað og þar var opnað á að skoða samningamál leikmanna,“ segir Friðjón í samtali við DV. „Þetta er samt ekki vegna neinnar óstjórnar eða mistaka. Við stöndum bara frammi fyrir ákveðnum veruleika sem er sá að ef við ætlum að verða 101 árs gamalt félag, 102 ára eða 110 ára þá verðum við að breyta einhverju.“
Töldu sig eiga innistæðu
Valsmenn fengu til sín átta nýja leikmenn fyrir tímabilið auk þess að ráða nýjan þjálfara til starfa. Friðjón segir Valsmenn þó ekki hafa eytt um efni fram. „Við styrktum liðið mikið síðasta hausta enda töldum við okkur þurfa að gera það til að ná markmiðum okkar,“ segir hann.
„Þegar að við gerðum þá samninga sem að við gerðum síðasta haust þá töldum við okkur eiga innistæðu fyrir þeim. Ég ætla alls ekki að segja að við eigum ekki innistæðu fyrir þeim samningum sem nú eru í gildi. Aftur á móti þegar fram í sækir sjáum við það fyrir að eiga ekki innistæðu fyrir áframhaldandi rekstri,“ segir Friðjón.
„Fyrirtæki eru ekki að styðja íþróttafélögin eins og þau gerði. Þess vegna þurfa menn að grípa til aðgerða. Tekjuöflunin hefur ekki gengið nægilega vel.“
Tímapunkturinn sýnir að þeim er alvara
Friðjón segir fjárhagsumhverfi íslenskra félaga í afreksíþróttum ekki boðlegt og erfiðara sé að safna fé í dag en áður fyrr.
„Fjárhagsumhverfi afreksíþrótta á Íslandi er ekki boðlegt. Þetta mál sem kom upp með Stjörnuna á dögunum hefði átt að vera meiri vakning fyrir félögin en mér sýnist það hafa orðið.“
„Allstaðar er staðan eins. Það er of mikill kostnaður og allt of litlar tekjur. Við erum núna að reyna ná smá skynsemi í þetta. Það að við veljum að gera þetta núna en ekki eftir mánuð sýnir að okkur er alvara. Við ætlum að koma rekstarumhverfi Vals í gott horf,“ segir Friðjón R. Friðjónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
