ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Ólafur ýjar að því að Veigar Páll hafi rofið áfengisbann

Veigar Páll braut agareglur og spilar því ekki með landsliðinu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:33 › 7. september 2011
Veigar Páll í landsleik árið 2010

Veigar Páll í landsleik árið 2010 MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, staðfesti í samtali við RÚV í kvöld að Veigar Páll Gunnarsson braut agareglur fyrir leik liðsins gegn Kýpur í gær. Því var Veigar tekinn úr hópnum á laugardaginn.

„Við settum ákveðnar reglur þegar við komum hingað til lands frá Noregi. Hann fór ekki eftir þeim reglum," sagði Ólafur í viðtali hjá RÚV. „Í kjölfarið fór af hann hótelinu á miðnætti. Ég leyfði mönnum að fara heim og heimsækja vini og vandamenn. Reglurnar voru þær að þeir áttu að skila sér aftur upp á hótel klukkan tólf og öll áfengisneysla var bönnuð," útskýrði Ólafur.

„Hann kom á hótelið fyrir tólf," sagði Ólafur og mátti því draga þær ályktanir af orðum hans að Veigar Páll hefði brotið reglurnar, og verið undir áhrifum áfengis.

Á æfingu landsliðsins á mánudaginn sagði Ólafur að um ágreining á milli hans og Veigars hefði verið að ræða, en vildi ekki útskýra nánar um hvað sá ágreiningur snérist.

DV hefur ekki náð í Veigar Pál í kvöld vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?