Hæpið verður að teljast að KSÍ myndi greiða Roy Keane 75 milljónir í árslaun fyrir að vera landsliðsþjálfari, hæpið, en þó ekki útilokað. Mynd: Reuters
Þrátt fyrir að margir Íslendingar séu búnir að gefa upp alla von um að Roy Keane verði næsti landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu eftir atburði gærdagsins þá heldur breska dagblaðið Daily Mail áfram fréttaflutningi sínu af málinu.
Í frétt sem birtist á vef Daily Mail í gærkvöldi segir að KSÍ sé reiðubúið að greiða Keane 400 þúsund pund í árslaun, eða sem nemur um 75 milljónum króna.
Hæpið en ekki útilokað
Þegar ársreikningur KSÍ fyrir árið 2010 er skoðaður verður þessi launatala að teljast hæpin en þó ekki útilokuð. Rekstrarhagnaður síðasta árs nam rúmum 67 milljónum króna, þegar áætlanir gerðu ráð fyrir 32 milljóna króna hagnaði. Það myndi þýða að árslaun Keane yrðu tæplega 8 milljónum hærri en rekstrarhagnaður KSÍ sem fór fram úr björtustu vonum í fyrra.
Hins vegar er fjárhagsstaða KSÍ þó traust. Um áramótin var handbært fé um 320 milljónir og eigið fé um 218 milljónir, með kúnstum mætti því kannski koma hálaunamanninum Keane fyrir í bókhaldi sambandsins þó það myndi vafalaust reynast afar stór biti fyrir samband sem í fyrra greiddi 110 milljónir króna í laun og launatengd gjöld vegna 16 stöðugilda á skrifstofu sambandsins og aðrar 48 milljónir í skrifstofu- og stjórnunarkostnað.
65 milljónum meira en Ólafur fær í árslaun
Samkvæmt tekjublaði DV var Ólafur Jóhannesson, núverandi landsliðsþjálfari, með tæpar 9,3 milljónir í árslaun árið 2010. Roy Keane myndi því þéna rúmlega 65 milljónum krónum meira á ári en núverandi landsliðsþjálfari ef marka má frétt Daily Mail. Í þessu samhengi mætti líka benda á að kostnaður KSÍ vegna A-landsliðs karla í knattspyrnu í fyrra nam 93,5 milljónum króna.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Moyes vill Björn Bergmann
„Þessi titill fyrir þig Pep“
Blanc hyggst prófa nýja leikmenn gegn Íslandi
Martinez verður Liverpool dýr
Loks töpuðu Skagamenn stigum
