ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Eggert Magnússon: „Nei hann verður ekki á leiknum“

Fjölmiðlar gripu í tómt í Leifsstöð
15:41 › 5. september 2011
Eggert ræðir við fjölmiðla fyrir utan Leifsstöð í dag.

Eggert ræðir við fjölmiðla fyrir utan Leifsstöð í dag.

Fjölmiðlar sem biður eftir komu Roy Keane í Leifstöð nú fyrir stundu gripu í tómt. Þess í stað gekk sposkur út Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ, en komið hafði fram í fjölmiðlum að leitað var til Eggerts varðandi ráðningu Roy Keane sem landsliðsþjálfara Íslands.

„Það hefur ekki verið rætt að hann taki að sér þetta starf,“ sagði Eggert aðspurður um viðbrögð Roy Keane við þeim fréttum að hann væri að fara að taka við landsliði Íslands í knattspyrnu. Eggert sagði að Keane hafi ekki komist vegna fjölskylduaðstæðna.

Eggert upplýsti einnig að Roy Keane verði ekki á Laugardalsvelli á morgun þegar Ísland tekur á móti Kýpur í undankeppni EM. „Nei hann verður ekki á leiknum,“ sagði Eggert en bætti þó við: „Það er vonandi að hann taki boði mínu um að koma til landsins.“

Aðspurður hvort Eggerti litist á Keane sem landsliðsþjálfara svarði hann: „Ég hef ekkert nema gott um Roy Keane að segja. Hann hefur sett mikið fordæmi fyrir aðra og þekkir þetta umhverfi út og inn.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?