ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Vettel: Ég elska þessa braut

Heimsmeistarinn stigi frá sínum öðrum titli
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:21 › 26. september 2011
Vettel er sama og orðinn heimsmeistari

Vettel er sama og orðinn heimsmeistari Mynd Reuters

„Ég er hæstánægður, bíllinn var frábær alla keppnina og þegar við þurftum að gefa í og slíta okkur frá hópnum var það lítið mál,“ sagði sáttur Sebastian Vettel, ökuþór Red Bull í Formúlu 1, en hann vann sitt níunda mót á árinu þegar hann kom fyrstur í mark í flóðljósunum í Singapúr í gær. Þetta var níunda mótið sem Vettel vinnur í ár en hann hefur nú 124 stiga forystu á næsta mann í stigamótinu, Jenson Button, sem varð annar í Singapúr.

Það þýðir aðeins eitt: Vettel vantar ekki nema eitt stig til þess að verja heimsmeistaratitil sinn frá því í fyrra. Eigi Vettel ekki að verða meistari í ár þarf Jenson Button að vinna allar fimm keppnirnar sem eftir eru og Vettel ekki að fá eitt einasta stig.

„Ég elska þessa braut. Sérstaklega eftir keppnina í fyrra þar sem ég barðist við Alonso allan tímann. Mér fannst ég geta farið hraðar þá þannig að ég nýtti þá reynslu og keyrði vel núna. Þetta er ein erfiðasta brautin á tímabilinu. Rakinn fær okkur til að svitna og virkilega hafa fyrir hlutunum. Það er gaman að komast í mark vitandi að maður hafi unnið fyrir því,“ segir Vettel sem veit vel af stöðunni sem hann er kominn í. „Ég er afskaplega ánægður núna og það lítur út fyrir að við getum fagnað mikið í næstu keppni.“

Jenson Button varð annar, á undan Mark Webber á Red Bull sem varð þriðji. Hann var ekki ánægður með hvernig hægfara bílarnir viku ekki frá þegar búið var að hringa þá.

„Það er erfitt að taka fram úr hérna og sérstaklega þegar hægari bílarnir sýna ekki nægilega virðingu og hleypa okkur ekki fram úr. Ég átti möguleika á lokahringnum en þá voru hægari gaurarnir þvílíkt að reyna að drífa sig í mark þrátt fyrir að ég væri búinn að hringa þá. Fyrir utan þau vonbrigði var þetta ágætis keppni hjá okkur,“ segir Jenson Button.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?