ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Vettel stigi frá titlinum

Vann sitt níunda mót í Singapúr
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:04 › 25. september 2011
Vettel hefur verið ósnertanlegur í ár.

Vettel hefur verið ósnertanlegur í ár.

Þjóðverjinn Sebastian Vettel á Red Bull kom fyrstur í mark í Singapúr-kappakstrinum í Formúlu 1 og varði um leið heimsmeistaratitil sinn sem hann vann í fyrra.

Vettel var á ráspól eins og svo oft áður á keppnistímabilinu og kom fyrstur í mark á undan Jenson Button á McLaren. Þetta er níunda mótið sem Vettel vinnur í ár en hann hefur drottnað yfir Formúlunni allt tímabilið.

Enn eru fimm keppnir eftir en Vettel er nú þegar kominn með 309 stig en í öðru sæti í stigamótinu en Jenson Button sem hefur 184 stig. Það munar því 125 stigum á fyrsta og öðru sæti.

Það þarf eitthvað meira en kraftaverk eigi Vettel ekki að verða heimsmeistari en til þess að koma í veg fyrir það þarf Button að vinna síðustu fimm keppnirnar og Vettel ekki að ná í eitt einasta stig það sem eftir er.

Mark Webber, liðsfélagi Vettel hjá Red Bull, varð þriðji í Singapúr og Fernando Alonso á Ferrari náði í fjórða sæti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?