ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

„Belgar þriðja besta liðið í riðlinum“

Ísland mætir Belgíu í undankeppni EM í kvöld
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:15 › 21. september 2011
Sigurður Ragnar og stelpurnar eru nær ósigrandi á Laugardalsvelli.

Sigurður Ragnar og stelpurnar eru nær ósigrandi á Laugardalsvelli. Mynd DV

„Þær eru með vel skipulagt lið sem spilar þétta vörn og sækir hratt,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, um næstu mótherja í undankeppni EM 2013, Belga. Íslandi mætir Belgíu á Laugardalsvellinum í kvöld klukkan 19.30. Sigurður segir Belgana vera með þriðja besta liðið í riðlinum og því þurfi okkar stúlkur að vera á tánum.

„Þær eru með hættulega framherja sem við þurfum að vita af líka. Belgar hafa verið að ná góðum úrslitum. Þær unnu bæði Rússland og Suður-Kóreu. Þær virðast vera þriðja besta liðið í riðlinum og lið sem við þurfum klárlega að leggja okkur fram við. Þetta verður erfiður leikur því þetta er betra lið en þau sem við höfum verið að mæta. Lið eins og Slóvenía, Grikkland og Serbía. Belgar eru klassa fyrir ofan þau,“ segir Sigurður Ragnar.

Ísland vann frækinn og sögulegan sigur á sterku liði Noregs á laugardaginn og kom sér þar í góða stöðu í riðlinum þó hann sé aðeins nýhafinn.

„Það var frábær leikur af okkar hálfu. Vonandi getum við haldið áfram að spila svona vel. Mikilvægasti leikurinn er samt alltaf sá næsti en það er margt mjög gott sem við getum tekið úr Noregsleiknum. Sá sigur telur samt lítið ef við vinnum ekki Belga,“ segir Sigurður Ragnar, en stelpurnar okkar ætla sér efsta sætið í riðlinum og þar af leiðandi sæti á EM.

„Það hefur allt frá byrjun verið yfirlýst markmið að vinna riðilinn. En ætlum við okkur að gera það þá þurfum við að vinna alla þessa leiki.“

Mætingin var þokkaleg á Noregsleikinn en Sigurður vonast eftir talsvert fleirum á fimmtudagskvöldið. „Ég myndi alltaf vilja sjá fleiri. Það er alla vega nóg pláss í stúkunni,“ segir hann léttur. „Við erum þakklát þeim sem komu á Noregsleikinn en
laugardagseftirmiðdagur er erfiður leiktími. Við vonumst til þess að fleiri komi og styðji liðið á fimmtudaginn,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?