Heil umferð átti að fara fram í Pepsi-deild karla í dag en vegna veðurs hefur þurft að fresta tveimur leikjum.
Annar þeirra er stórleikur ÍBV og KR en þau lið eiga í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. Ófært er til Eyja í dag og hefur leikurinn því verið settur á morgun klukkan 17.00.
Sömu sögu má segja um leik Grindavíkur og FH en honum hefur verið frestað þar sem ekki er leikhæft í Grindavík eins og staðan er og veðurspáin gefur til kynna að það muni ekki breytast þegar líður á daginn.
Honum hefur einnig verið frestað til klukkan fimm á morgun.
Fjórir leikir fara þó fram. Víkingar heimsækja Blika í Kópavoginn, Valsmenn fá Þórsara í heimsókn, Fram tekur á móti Keflavík og þá eigast Fylkir og Stjarnan við í Árbænum.
Allir leikirnir nema Fram - Keflavík hefjast klukkan 17.00. Leikurinn í Laugardalnum hefst klukkan 19.15.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
