ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Þremur leikjum frestað til viðbótar

Bara spilað á Valsvelli
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:05 › 18. september 2011
Arnar Sveinn og félagar í Val taka á móti Þór í rokinu.

Arnar Sveinn og félagar í Val taka á móti Þór í rokinu.

Veðurguðirnir hafa heldur betur látið til sína taka í dag og er nú búið að fresta þremur leikjum til viðbótar í Pepsi-deildinni.

Fyrr í dag var búið að fresta viðureign ÍBV og KR og einnig Grindavíkur og FH.

Nú hefur einnig leikjum Fram og Keflavíkur, Breiðabliks og Víkings og Fylkis og Stjörnunnar verið frestað.

Eini leikurinn sem fer fram er því viðureign Vals og Þórs sem hefst núna klukkan 17.00.

Hinir leikirnir fimm verða spilaðir á morgun klukkan 17.00 að undanskildum leiks Fram og Keflavíkur sem verður spilaður klukkan 19.15.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?