ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Vettel: Þetta var æðisleg keppni

Enginn snertir heimsmeistarann úr þessu
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:59 › 12. september 2011
Vettel fær kampavínsbunu frá Button á verðlaunapallinum í Monza.

Vettel fær kampavínsbunu frá Button á verðlaunapallinum í Monza. Mynd Reuters

Sebastian Vettel á Red Bull er svo gott sem orðinn heimsmeistari í Formúlu 1, annað árið í röð, eftir sannfærandi sigur á Monza-brautinni á Ítalíu í gær.

Sigur Vettels var hans áttundi á árinu í tólf keppnum en hann hefur aldrei lent neðar en í öðru sæti á öllu tímabilinu. Hann hefur nú 112 stiga forystu á Fernando Alonso í stigakeppni ökuþóra en Alonso varð þriðji á Monza, heimabraut Ferrari, en Jenson Button á McLaren varð þriðji. Hamilton endaði fjórði.

Fyrsti sigur Vettels í Formúlunni kom fyrir þremur árum þegar hann vann óvænt á Monza.

„Þetta var æðisleg keppni og þegar ég kom í mark rifjuðust upp allar tilfinningarnar frá fyrsta sigrinum. Það er líka ótrúlegt að standa á verðlaunapallinum á þessari braut því það er bara mannhaf svo langt sem augað sér. Þessi braut hefur verið okkur erfið undanfarin ár en í dag var bíllinn frábær, jafnvel betri en í tímatökunni,“ segir Vettel sem hóf leik einu sinni sem oftar fremstur á ráslínu.

Fernando Alonso á Ferrari gerði vel í að ná þriðja sætinu og komast á pall á heimavelli Ferrari og fólkið hyllti hann og liðið mikið fyrir það.

„Það er alltaf gaman að sjá fólkið fagna manni hérna. Liðið var undir mikilli pressu að gera bílinn samkeppnishæfan á þessari braut og okkur tókst það. Við sluppum við mistök og það að halda einum Red Bull-bíl og einum McLaren-bíl fyrir aftan okkur tel ég mikið afrek,“ segir Alonso en Mark Webber á Red Bull kláraði ekki keppnina.

Það er alveg ljóst að ekki nokkur ökumaður á séns í heimsmeistaratitilinn úr þessu en baráttan um annað og þriðja sætið í stigakeppninni verður hörð.

Þegar sex keppnir eru eftir er Alonso með 172 stig í öðru sæti, Button 167 í þriðja sæti, Webber einnig 167 stig og Hamilton er fjórði með 158 stig. Næsti maður er svo Felipe Massa á Ferrari sem hefur 82 stig og er nokkuð öruggur með fimmta sætið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?