„Það er eitt að vinna mót en það er annað að vinna með svona stæl,“ segir Þorlákur Árnason, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar en Stjörnustúlkur tóku á móti Íslandsmeistaratitlinum eftir 5-0 burst gegn Breiðabliki á laugardaginn.
Titillinn er sá fyrsti sem meistaraflokkur hjá Stjörnunni vinnur í knattspyrnu hvort sem um er að ræða karla- eða kvennaflokk.
Stjarnan vann sautján af átján leikjum sínum í deildinni, þar af síðustu fimmtán í röð og jafnaði stigamet Vals sem er 51 stig. Stjarnan skoraði 57 mörk og fékk aðeins á sig fjórtán. Eina liðið sem vann Stjörnuna var einmitt Valur en það var í þriðju umferð.
Þorláki fannst umræðan í ár skrýtin og fannst of margir vilja meina að Stjarnan væri að vinna á einhverri heppni.
„Í grunninn vill fólk ekki miklar breytingar,“ segir hann og vitnar til Valskvenna sem unnu titilinn fimm síðustu ár.
„Það er þægilegt ef hlutirnir eru óbreyttir fyrir sumar. En Við erum bara með besta liðið. Kannski ekki endilega bestu einstaklingana en klárlega besta liðið,“ segir hann.
Nánar er rætt við Þorlák í DV í dag



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
