ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Vettel fyrstur á Ítalíu

Langefstur í stigakeppninni
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:28 › 11. september 2011
Það snertir enginn Vettel úr þessu

Það snertir enginn Vettel úr þessu Mynd Reuters

Það er orðið morgunljóst hver verður heimsmeistari í Formúlu 1 í ár en ekki nokkur maður getur snert ríkjandi meistarann, Sebastian Vettel, úr þessu.

Hann kom fyrstur í mark á Monza-brautinni á Ítalíu í dag og hefur 112 stiga forskot í stigakeppni ökumanna.

Jenson Button á McLaren náði í annað sætið og Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji. Lewis Hamilton var í fjórða sæti og sjöfaldi heimsmeistarinn Michael Schumacher endaði í fimmta sæti.

Eftir sigurinn hefur Vettel 284 stig en næstur kemur Spánverjinn Alonso með 172. Vetter er því með 112 stiga forskot þegar aðeins sex keppnir eru eftir.

Vettel hefur unnið átta af tólf keppnum ársins til þessa og í hinum fjórum sem hann hefur ekki unnið hefur hann endað í öðru sæti.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?