ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Vettel á ráspól í tíunda sinn á tímabilinu

Formúla 1 er á Ítalíu um helgina
Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is
13:53 › 10. september 2011
Vettel undirbýr sig fyrir tímatökurnar í morgun.

Vettel undirbýr sig fyrir tímatökurnar í morgun. Mynd Reuters

Þýski ökuþórinn Sebastian Vettel verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum sem fram fer á Monza-brautinni á Ítalíu á morgun. Hann náði besta tíma í tímatökunum fyrir mótið sem fram fóru í dag. Vettel er ökumaður Red Bull-liðsins, sem er í efsta sæti í heimsmeistaramóti bílaframleiðanda.

Bíll frá Red Bull hefur verið á ráspól á öllum mótum ársins en þetta er í tíunda mótið af þrettán þar sem Vettel verður á ráspól. Hin þrjú skiptin hefur Mark Webber, sem líka ekur fyrir Red Bull-liðið, verið á ráspól. Webber náði ekki nema fimmta besta tímanum í tímatökunni í dag en hann varð á eftir Fernando Alonso, á Ferrari.

Bretinn Lewis Hamliton og Jenson Button, sem báðir keyra á McLaren-bílum, eru númer tvö og þrjú í rásröðinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?