ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Grétar stendur í baráttu utan vallar

Gefur ekki kost á sér í landsliðið á meðan
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:58 › 9. ágúst 2011
Grétar Rafn Steinsson ræðir við fjölmiðla eftir landsleik.

Grétar Rafn Steinsson ræðir við fjölmiðla eftir landsleik.

„Undanfarið ár hef ég verið í baráttu utan fótboltavallarins og því miður hef ég af þeim sökum ekki getað gefið hundrað prósent af mér til landsliðsins,“ er haft eftir bakverðinum Grétari Rafni Steinssyni í Fréttablaðinu í dag sem ekki gefur kost á sér með íslenska landsliðinu á þessu ári og segir það vera vegna persónulegra vandamála. Hann hefur ekki leikið með landsliðinu síðan í október í fyrra.

Grétar Rafn hefur hins vegar getað leikið með félagsliði sínu Bolton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni. Hann lék, eða kom við sögu í, 23 leikjum með Bolton í deildinni á síðasta tímabili auk þess að leika þrjá leiki í bikarkeppnum Englands. Grétar segir enda í viðtali við Fréttablaðið í dag að „Það er mikið álag sem fylgir mínu starfi og í augnablikinu treysti ég mér ekki til að gefa landsliðinu allt mitt. Ég verð að gera það í minni vinnu en ég get ekki mætt í landsleiki með hálfum huga. Frekar sleppi ég því.“

Grétar Rafn kýs að greina ekki frekar frá hvers eðlis þessi persónulegu vandamál eru í Fréttablaðinu í dag en skýring á þessum vandamálum gætu legið í þeim háværa orðrómi sem gengið hefur frá því í byrjun árs í fyrra þess efnis að Grétar og eiginkona hans, Manúela Ósk Harðardóttir, stæðu í skilnaði. Séð og Heyrt greindi meðal annars frá því á forsíðu sinni. Á þeim tíma sagði Grétar ekkert hæft í þessum fréttum og ekkert verið staðfest opinberlega um málið. En orðrómurinn hefur lifað og herma heimildir að þau séu skilin að borði og sæng. Mætti því álykta að þetta sé baráttan sem Grétar hefur staðið í utan fótboltavallarins undanfarið ár.

Ísland mætir Ungverjalandi í æfingaleik á morgun.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?