ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

KR enn á toppi úrvalsdeildarinnar

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
21:47 › 7. ágúst 2011
KR-ingar eru enn á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leik kvöldsins

KR-ingar eru enn á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leik kvöldsins

Sex leikir fóru fram í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld.

Stjarnan burstaði Þór 5-1 þrátt fyrir að vera lengi einum manni færri í leiknum.

ÍBV og Valur gerðu markalaus jafntefli líkt og Fram og Fylkir gerðu.
FH sigraði Keflavík 1-0 þegar Atli Viðar Björnsson kom inn á sem varamaður og skoraði mark FH-inga.

Grindavík og Íslandsmeistararnir í Breiðabliki gerðu jafntefli 1-1
KR sigraði Víking 3-2 og tryggði KR sér þannig stöðu sína á toppi Úrvalsdeildarinnar þegar Kjartan Henry Finnbogason skoraði síðara mark KR-inga í uppbótartíma.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?