Viðræður milli eigenda NBA-liðanna og leikmannasamtakanna sigldu enn einu sinni í strand í vikunni þegar allir aðilar hittust undir forystu Davids Sterns, yfirmanns NBA-deildarinnar. Deildin er frosin eins og staðan er og hefur ekkert lið hafið æfingar. Ef svo fer sem horfir verður engin NBA-deild í vetur en deilendur virðast alls ekki geta komist að samkomulagi.
Deilan snýst að sjálfsögðu um peninga en eigendur liðanna vilja róttækar breytingar á launastrúktúr deildarinnar. Þeir segjast hafa tapað yfir 300 milljón dollurum á síðasta ári eða því sem nemur 35 milljörðum króna.
Leikmannasamtökin undir forystu Laker-mannsins Dereks Fischers viðurkenna tapið en segja það ekki jafnmikið og eigendurnir vilja halda fram. Þeir eru aftur á móti harðlega á móti nýja harða launaþakinu sem eigendurnir vilja, launaskerðingunni sem fyrirhuguð er og hversu langir samningar mega vera.
Bæði leikmenn og eigendur hafa komið með hinar og þessar tillögur en í grunninn vilja báðir aðilar fá sem mestan pening. Sagði David Stern að nákvæmlega ekkert hefði þokast áfram á fundi á mánudaginn. Eins og staðan er virðist lausn ekki nálægt því að vera í sjónmáli sem þýðir að íþróttaáhugamenn verða án NBA í vetur.
Margar NBA-stjörnur hafa sagst vera tilbúnar að spila í Evrópu í ár og gæti þar orðið algjör gósentíð hjá liðum sem hafa efni á risastjörnum. Besti körfuboltamaður heims, Kobe Bryant, hefur meira að segja sagst vera klár í að spila með Besiktas í Tyrklandi finni þeir milljón dollara á mánuði til að leggja inn á hann.
Miðað við körfuboltaáhugann hjá Besiktas sem kristallaðist með komu Allens Iversons síðasta sumar til liðsins er ekki ólíklegt að svo fari.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
