ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Kúluvarpari var langsíðastur í 100 metra hlaupi á HM

Var 40 metrum á eftir - „Ég trúði á sjálfan mig“
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:35 › 28. ágúst 2011
Sogelau Tuvalu gerir sig kláran.

Sogelau Tuvalu gerir sig kláran.

Sautján ára keppandi frá Samóaeyjunum sló í gegn þegar hann tók þátt í hundrað metra hlaupi á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Daegu, Suður-Kóreu. Sogelau Tuvalu var töluvert stærri en keppinautar sínir og var eini keppandi sem var ekki í gaddaskóm.

Þrátt fyrir að hafa byrjað vel úr blokkunum þá dróst hann strax aftur úr. Bilið á milli hans og keppinautanna var um fjörutíu metrar á einum tímapunkti hlaupsins.

Hann var síðastur í mark á 15,66 sekúndum.

Tími Tuvalu er sá næst versti í sögunni en sá sem hefur hlaupið hundrað metrana hægast í opinberri keppni var rúmar 21 sekúndu að klára hlaupið.

Tuvalu mistókst að ná lágmarki til þess að fá að keppa í kúluvarpi. Skipuleggjendur mótsins ákváðu því að skrá hann til leiks í hundrað metra hlaupi.

Keppendur frá smærri þjóðum þurfa ekki að ná lágmörkum til þess að taka þátt í hlaupagreinum. Í viðtali við franska sjónvarpsstöð sagðist hann hafa æft í fjóra tíma á dag í einn mánuð fyrir hlaupið.
Hann náði sínum besta árangri í hlaupinu og var frekar ánægður. Fréttamaður spurði hann eftir hlaupið: „Trúðir þú að einn daginn ættir þú eftir að keppa í hlaupi á heimsmeistaramóti?“ Tuvalu svaraði að bragði: „Ég trúði á mig sjálfan. Draumurinn er að rætast.“




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?