ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Bolt of fljótur á sér

Dæmdur úr leik eftir þjófstart
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:22 › 28. ágúst 2011
Bolt reif sig úr keppnistreyjunni eftir að ljóst varð að hann hafði þjófstartað

Bolt reif sig úr keppnistreyjunni eftir að ljóst varð að hann hafði þjófstartað Mynd Reuters

Usain Bolt, heimsmethafi í 100 metra hlaupi karla, var dæmdur úr leik eftir að hafa þjófstartað í úrslitum 100 metra hlaupsins á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Daegu í Suður-Kóreu. Kom það fólki í opna skjöldu en fyrir hlaupið virkaði Bolt jafn öruggur og venjulega. Sumir vilja að reglunum verði breytt fyrir ólympíuleikanna þar sem þetta sé keppni í hver sé fljótastur en ekki hver haldi sér sem fastast á ráslínunni. Ekki er þó öll von úti fyrir Bolt en hann á enn eftir að keppa í 200 metra hlaupi og 4 x 100 metra hlaupi

Það var landi hans, Yohan Blake, sem stóð að lokum uppi sem sigurvegari á 9,92 sekúndum, 34 sekúndubrotum á eftir heimsmeti Bolts.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?