Það gætin farið svo að Dirk Nowitzky og Jason Kidd fái frí næsta vetur. Þeir urðu meistarar með Dallas Mavericks í vor.
„Það verður deild, ég held að það sé alveg öruggt,“ segir körfuboltasérfræðingurinn Svali Björgvinsson um stöðu mála í NBA-deildinni. Óvíst er hvort nokkuð verði leikið í NBA-deildinni næsta vetur vegna deilna á milli eigenda liðanna í deildinni og leikmannasamtaka. Deilurnar snúast um peninga. Eigendur liðanna segjast hafa tapað yfir 300 milljónum dala á síðasta ári og vilja að leikmenn taki á sig launaskerðingu til að mæta tapinu. Leikmannasamtökin, undir forystu Derek Fischer, leikmanns Los Angeles Lakers, vilja hins vegar ekki taka á sig skerðingu og fullyrða að staða liðanna sé betri en haldið er fram. Svo lengi sem ekki finnst lausn á deilunni verður ekkert spilað í NBA deildinni.
Hótunarleikur
„Þetta er orðið mjög áhugavert. Núna eru umboðsmennirnir komnir með millileik og hóta því að leikmenn fari til Tyrklands. Þetta eru bara hótanir og menn eru komnir í hótunarleik í fjölmiðlum,“ segir Svali sem lýst hefur leikjum í NBA-deildinni við góðan orðstýr fyrir sjónvarpsstöðina Stöð 2 Sport. Svali segir viðbúið að einhver seinkun verði á því hvenær deildin fer af stað, en að allt of mikið sé í húfi, bæði fyrir leikmenn og lið deildarinnar, til að ekkert verði spilað. Orðrómur hefur verið uppi um að stórstjörnur á borð við Kobe Bryant og Kevin Durant fari til Besiktas í Tyrklandi. Svali gefur hins vegar lítið fyrir þann orðróm. „Þessir leikmenn vita ekki einu sinni hvar Tyrkland er á kortinu. Þeir eru ekkert að fara þangað.“
Allt of há laun
Svali segir að nálgun Davids Stern, forsvara deildarinnar, sé mjög áhugaverð, en mat Sterns er það að lið séu að tapa of miklum peningum og leikmenn séu að taka allt of stóran hluta af kökunni. „Hann setur algjört bann á leikmenn og maður spyr sig hvort þetta muni einhverntímann gerast til dæmis í ensku deildinni í fótbolta,“ segir Svali og bætir við að launastrúktur deildarinnar sé í raun út úr öllu korti. „Það er verið að setja fullt af kröfum. Eins og það að leikmenn eins og Allan Houston geti ekki verið með 15 milljónir dala á ári löngu eftir að hann hættir í körfubolta,“ segir Svali en Houston lagði skóna á hilluna árið 2005. „Ég held að í hvert skipti sem Carmelo Anthony leggur sig og nær ágætum nætursvefni þá er hann að fá sem samsvarar mánaðarlaunum forsætisráðherra. Þetta eru orðin svo geggjuð laun.“
Almannatengsla stríð
Svali segir að deilurnar séu orðnar mjög áhugaverðar. „Það er að færast svona PR-vinkill inn í þetta. Maður sér það þegar maður fer inn á heimasíðu deildarinnar að þá er bara fjallað um gamla leikmenn. Það er ekkert verið að flagga núverandi leikmönnum,“ segir Svali og bætir við að Tyrklandsvinkillinn sé einkar áhugaverður. „Það gæti verið að eitthvað af þessum evrópsku leikmönnum fari en ég sé ekki bandarísku leikmennina funkera fyrir utan Bandaríkin. Það getur verið að einn og einn leikmaður sem komnir eru af léttasta skeiði fari til að mjólka aðeins. Það verður samt pottþétt deild og maður þarf að fara safna á sig fitu í sumar til að byggja sig upp fyrir næsta vetur,“ segir Svali. Hann er að lokum spurður hvort áhangendur NBA-deildarinnar eigi von á honum á skjáinn næsta vor þegar úrslitakeppnin hefst, ef allt fer á óskum. „Ég vona bara að það verði deild. Það er aukaatriði hvort ég verði að lýsa,“ segir Svali í léttum tóni að lokum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
