Annie Mist Þórisdóttir, hefur vakið mikla athygli eftir að hún varð heimsmeistari í Crossfit á dögunum. Í gær þurfti hún að tilkynna aðdáendum sínum á Facebook að hún gæti ekki samþykkt fleiri vini þar sem hún væri búin að sprengja fimm þúsund manna vinalistann sinn. Stór hluti vina hennar á Facebook eru aðdáendur erlendis.
„Sorry I can't accept more friends checking out if I can work through that one,” sagði Annie í gær. Eins og kunnugt er vann Annie Mist sér inn 250 þúsund dali þegar hún vann sér inn titilinn ”hraustasta kona heims” sem hún fékk eftir sigur sinn á heimsleikunum í Crossfit á heimsleikunum í Los Angeles í Kaliforníu.
Annie gerði nýverið styrktarsamning við Reebok og prýðir nú meðal annars auglýsingaskilti fyrir fyrirtækið, tekur þátt í auglýsingaherferð þeirra og tekur þátt í vöruhönnun hjá fyrirtækinu. Líklega mun hún vekja enn meiri athygli á næstunni eftir sigur sinn á heimsleikunum.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
