ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Schumacher gæti hætt aftur

Íhugar stöðu sína hjá Mercedes
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:15 › 10. ágúst 2011
Ekkert hefur gengið hjá Schumacher síðan hann snéri aftur.

Ekkert hefur gengið hjá Schumacher síðan hann snéri aftur. Mynd Reuters

Sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Michael Schumacher, er ekki viss um að hann muni keyra áfram fyrir Mercedes-liðið á næsta ári þrátt fyrir að vera með samning þess efnis.

„Ég kom til Mercedes með ákveðið plan: Ekki að vinna allar keppnir heldur að þróa liðið,“ segir hann við ítalska blaðið Corriere dello Sport.

„Ef eitthvað er, þá er ég vandamálið. Það er staðreynd að ég er rólegri en áður og kannski ekki með rétt hugarfar. Á einhverjum tímapunkti mun ég taka ákvörðun um hvort ég haldi áfram eða hreinlega hætti aftur,“ segir Michael Schumacher.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?