Á sunnudaginn fer fram ein stærsta Formúlukeppni hvers árs þegar ökuþórar liðanna geysast um Silverstone-brautina í Bretlandi. Einn maður verður þó tæplega að horfa, fyrrverandi heimsmeistarinn í Fomúlu 1, Jacques Villeneuve.
Kanadamaðurinn fertugi sem síðast keyrði fyrir Sauber árið 2006 hefur oft verið orðaður við endurkomu í Formúluna en miðað við orð hans í veislu Williams-liðsins þegar það kynnti nýju Renault-vélarnar sínar um daginn er það tæplega að fara gerast.
„Ég horfi ekki einu sinni á keppnirnar lengur. Í fyrsta skipti frá því ég man eftir mér nenni ég því ekki. Þegar mótin eru hálfnuð er ég byrjaður að geispa. Þetta er erfitt fyrir mig því ég verð bara reiður að horfa á þetta,“ segir Villeneuve.
Engin spenna
Það verður seint sagt að Formúlutímabilið í ár hefur verið spennandi en Sebastian Vettel á Red Bull hefur unnið sex af átta fyrstu keppnunum. Þá eru þetta nær alltaf sömu bílarnir sem raða sér í efstu sætin. Munurinn á gæðum bílanna er svo mikill að góðir ökumenn geta illa varið stöðu sína gegn þeim sem eru á betri bílum.
„Michael Schumacher hefði með réttu átt að vera á palli í Kanada um daginn. En það var ekki séns að hann gæti varið stöðu sína. Ég verð bara pirraður að horfa á þetta,“ segir Villeneuve sem er ekki hrifinn af DRS-kerfinu, eða færanlega afturvængnum, sem hjálpar ökumönnum gríðarlega við framúrakstur.
„Mér finnst ekkert gaman að sjá framúrakstur með DRS. Ég vil bara sjá Lewis Hamilton brjálaðan eins og hann hefur verið undanfarið og reyna að strauja fram úr mönnum á erfiðum stöðum. Það er gaman og spennandi. Framúrakstur með DRS er hundleiðinlegur. Ég bara sofna þegar ég sé svoleiðis leiðindi. Ég hreinlega skil ekki hvers vegna þetta dót er á bílunum. Þegar menn sjá að það er verið að taka fram úr þeim reyna þeir ekki einu sinni að verja sig. Þeir geta það ekki. Til hvers ættu þeir að reyna það?“ segir Villeneuve.
Röngum mönnum refsað
„Dómarar eru líka að refsa mönnum fyrir að gera mistök frekar en þeim sem keyra hættulega,“ hélt Villeneuve áfram. „Það er algjörlega rangt. Það gerist alveg að menn klessi á, þetta er nú kappakstur. Síðan sikk-sakka menn í brautinni og gera alls kyns hættulega hluti en fá ekki bágt fyrir það. Það finnst mér ekki rétt stefna,“ segir Villeneuve sem sjálfur lenti í því að Michael Schumacher keyrði viljandi á hann og var Schumacher refsað með því að hann missti ölll stigin í heimsmeistarakeppninni það árið.
Ef einn ökuþór hefur verið grófari en annar í brautinni í ár er það Lewis Hamilton á McLaren en hann hefur verið að gera ökumenn brjálaða með látum í brautinni. „Lewis keyrir mjög ákveðið í ár og gleymir sér stundum þannig að hann endar á því að klessa á aðra bíla. En það á ekkert að stöðva það. Þetta er jú kappakstur! Þetta er nákvæmlega það sem maður vill sjá. Baráttu,“ segir Jacques Villeneuve.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Engar liðskipanir hjá Lotus
Vettel vann í Barein
Hamilton: Ég ákveð sjálfur mitt næsta skref
Rosberg: Tilfinningin er mögnuð
Vilja grænni Formúlu 1
