Stuðningsmannalið Bí/Bolungarvíkur hefur skorað á stuðningsmannalið KR í mýrarbolta um Verslunarmannahelgina. „Við ætluðum nú bara að athuga hvort að það sé eitthvað á þeim, eða hvort að þeir séu bara pempíur úr bænum,“ segir Eyþór Jóvinsson hjá Bláum og mörðum.
Um verslunarmannahelgina mun fara fram bikarleikur á Ísafirði á milli KR og BÍ/Bolungarvíkur og því skorar Blár og Marinn á Miðjuna, sem er stuðningsmannalið KR, í mýrarbolta þá helgina. „Við erum nokkrir áhugamenn sem erum að reyna að byggja upp stemmingu í kringum þetta,“ segir Eyþór, en mýrarbolti fer ólíkt hefðbundnum fótbolta fram í mýri.
Evrópumeistaramótið í Mýrarbolta fer fram á Ísafirði um verslunarmannahelgina og verður það í áttunda sinn sem sú keppni er haldin. „Blár og Marinn skora á Miðjuna að taka smá upphitun fyrir leikinn með því að takast á í mýrarbolta. Mýrarbolta svipar mjög til fótbolta nema að leikið er í mýri, en ekki á grasi. Þar að auki eru leikreglur öllu frjálslegri og refsingar fyrir leikbrot í skrautlegri kantinum, þar ber helst að nefna að leikmenn kyssa á bágtið, verða fyrir skítkasti eða eru látnir spila með hauspoka,“ segir meðal annars í áskoruninni frá Bláum og mörðum.
En er Eyþór bjartsýnn um að leggja Miðju-menn að velli, ef þeir mæta áskoruninni? „Já, ég ætla nú að vona það. Ég hugsa að við leggjum þá alls staðar - hvort sem það er í drullunni, í grasinu eða í brekkunni,“ segir Eyþór kokhraustur.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
