ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Annie Mist er hraustasta kona í heimi

„Fittest Woman on Earth“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
22:47 › 31. júlí 2011

Annie Mist Þórisdóttir er „Fittest Woman on Earth“ en hún tryggði sér heimsmeistaratitil á heimsleikunum í Crossfit, sem nú fara fram í Los Angeles. Þetta er glæsilegur árangur hjá Annie Mist, en hún er 21 árs nemi við Háskóla Íslands.

Annie Mist á langan íþróttaferil að baki sem nýtist henni vel til framúrskarandi árangurs í CrossFit íþróttinni. Hún æfði fimleika með Gerplu, stangarstökk og BootCamp áður en hún ákvað að leggja fyrir sig CrossFit fyrir tveimur árum síðan. Hún er líka Evrópumeistari kvenna í greininni eftir sigur á Evrópumóti í síðasta mánuði.

Annie gerði nýverið styrktarsamning við Reebok og prýðir nú meðal annars auglýsingaskilti fyrir fyrirtækið, tekur þátt í auglýsingaherferð þeirra og tekur þátt í vöruhönnun hjá fyrirtækinu.

Verðlaun Annie eru 30 milljónir króna sem verðlaunafé og auðvitað titillinn „Fittest Woman on Earth“. Annie Mist fékk 842 stig samanlagt í tíu greinum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?