ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 8m/s S

Veigar til Vålerenga

Skrifaði undir 3 ára samning
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:44 › 30. júlí 2011
Veigar hefur leikið þó nokkra leiki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu.

Veigar hefur leikið þó nokkra leiki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Mynd DV

Knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við norska félagið Vålerenga. Hann fer til félagsins frá Stabæk þar sem hann hefur spilað undanfarin ár.

Veigar verður eflaust mikill liðsstyrkur fyrir Vålerenga sem er nú í 10. sæti í norsku úrsvalsdeildinni, tveimur stigum á eftir Stabæk sem er í sjöunda sæti og einu stigi á eftir Rosenborg sem er í 9. sæti en Rosenborg var sóttist einnig á eftir Veigari og leit á tímabili út fyrir að hann myndi ganga til liðs við þá.

Veigar er uppalinn í Stjörnunni. Hann varð Íslandsmeistari með KR árið 2002 og 2003 og gekk því næst til lið við Stabæk. Hann var lykilmaður í liði liðsins þegar Stabæk var norskur meistari og reyndi í kjölfarið fyrir sér í Frakklandi þegar hann gekk til liðs við Nancy. Þar náði hann sér aldrei á strik og gekk aftur til liðs við Stabæk eftir eitt ár í Frakklandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?