Stjórn Mýrarboltafélags Íslands hefur skrifað undir samning við Eyjólf Sverrisson um að hann þjálfi landslið Íslands í mýrarbolta, bæði karla og kvenna
Stjórn Mýrarboltafélags Íslands hefur skrifað undir samning við Eyjólf Sverrisson um að hann þjálfi landslið Íslands í mýrarbolta, bæði karla og kvenna. Launakjör eða önnur ákvæði samningsins verða ekki gefin upp að svo stöddu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Mýraboltafélags Íslands.
„Þetta er ánægjulegt skref. Mig hefur í nokkurn tíma vantað þægilega aukavinnu sem borgar vel, og þetta djobb uppfyllir þær kröfur,“ segir Eyjólfur. „Ég man að einu sinni var ég á landbúnaðarsýningu í nágrenni við Stuttgart, og þar sá ég fjögur ægileg svín takast á í stíu. Þar sýndist mér sá feitasti hafa ótvíræða yfirburði, og því er líklegt að ég muni leggja á það ríka áherslu að landsliðsmennirnir borði kolvetna- og fituríka fæðu. Leikskipulag hefur líklega minni áhrif.“
Eyjólfur furðar sig á að KSÍ hafi ekki tekið upp regluna um skítkast. „Nóg er nú drullumakið inná vellinum. Mér sýnist skítkastið vera eina ærlega leiðin til að veita fótboltadólgum ráðningu. Mér dettur til dæmis í hug að leikaraskapur, munnbrúk og rangt tekið innkast varði við skítkast.“
„Stórum áfanga er náð. Eyjólfur er búinn að vera í drullumálum síðustu misseri, og samkvæmt þessum samningi verður hann það áfram,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson aðalritari Mýrarboltafélags Íslands. „Eyjólfur er átrúnaðargoðið mitt,“ segir hann
Vonast er til að Eyjólfur geti komið á mýrarboltamótið á helginni til að velja landsliðmenn beggja liða, segir í tilkynningunni.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
