Hin átján ára gamla Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er Íslandsmeistari í höggleik 2011. Hún gjörsigraði andstæðinga sína og vann með níu högga mun en mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru þetta árið.
Ólafía Þórunn tók forystuna eftir annan hringinn og gerði lítið annað en að breikka bilið á milli sín og annarra keppenda. Hún fór hringinn á fyrsta degi á pari, tveimur undir á öðrum degi, og tveimur yfir á þriðja degi.
Í dag, við gríðarlega erfiðar aðstæður, fór Ólafía holurnar átján á átta höggum yfir pari en það dugði til auðvelds sigurs þar sem forskot hennar var svo mikið fyrir daginn.
Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Tinna Jóhannsdóttir, sem setti vallarmet á fyrsta degi, lék best í Leirunni í dag og fór holurnar átján á þremur höggum yfir pari. Hún var þó aldrei nálægt því að ógna Ólafíu Þórunni.
Lokastaða efstu kvenna:
1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +8
2. Tinna Jóhannsdóttir, GK +17
3. Signý Arnórsdóttir, GK +22
4. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +23
5. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG +24
6.-7. Þórdís Geirsdóttir, GK +26
6.-7. Eygló Mirra Óskarsdóttir, GO +26
8. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +28
9.-10. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK +30
9.-10. Berglind Björnsdóttir, GR +30



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
