Axel Bóasson, GK, er enn efstur á Íslandsmótinu í höggleik en lokahringurinn stendur nú yfir bæði hjá konum og körlum. Axel hefur lokið við níu holur af átján í dag og hefur þriggja högga forystu á Kristján Þór Einarsson, GKJ.
Aðstæður á Leirunni í dag eru mjög erfiðar og þurfti að fresta leik tvívegis í morgun vegna mikils roks. Vindinn hefur lægt en er þó að gera mörgum kylfingum nokkurn óleik.
Axel lék fyrri níu á þremur höggum yfir pari en Kristján Þór Einarson er að leika besta golfið hingað til. Hann er búinn með ellefu holur og hefur leikið þær á tveimur undir.
Úrslitin eru sama og ráðin í kvennaflokki en þar hefur Ólafía Þórunn Kristinsdóttir þrettán högga forystu á næstu konu, Tinnu Jóhannsdóttur. Konurnar hafa lokið við þrettán holur og er því fátt sem kemur í veg fyrir að Ólafía Þórunn verði meistari á Leirunni seinna í dag.
Hægt er að fylgjast með skori kylfinga í beinni hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
