Axel Bóasson, kylfingur úr GK, er Íslandsmeistari í höggleik karla eftir spennandi lokahring á Hólmsvelli í Leiru í dag. Axel fór lokahringinn í dag á tveimur yfir pari og samtals hringina fjóra á tveimur undir pari.
Íslandsmeistarinn frá árinu 2008, Kristján Þór Einarsson úr GKJ, lék mjög vel í dag eða á þremur höggum undir pari. Hann fékk gullið tækifæri á lokaholunni í dag til að jafna við Axel en þá var hann að pútta fyrir erni.
Kristjáni brást þó bogalistin og þrípúttaði. Hann kláraði hringina fjóra á einu höggi yfir pari.
Það þýddi að hinn 21 árs gamli Axel sem var í ráshóp á eftir Kristjáni Þór dugði að fara 18. holuna, sem er par fimm, á pari til þess að hampa sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli.
Hann gerði enn betur, náði erni á lokaholunni og fór því hringina fjóra á samtals tveimur undir pari. Axel vann því með þriggja högga forystu.
Axel var í forystu í Leirunni allt frá fyrsta degi þegar hann jafnaði vallarmetið í Leirunni. Eftir annan daginn var hann efstur og jafn ásamt Alfreð Brynjari Kristinssyni úr GKG en í dag hóf Axel leik einn fremstur.
Lokgastaða efstu karla:
1. Axel Bóasson, GK -2
2. Kristján Þór Einarsson, GKJ +1
3.-5. Ólafur Már Sigurðsson, GR +3
3.-5. Heiðar Davíð Bragason, GÓ +3
3.-5. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG +3
6.-7. Ólafur Björn Loftsson, NK +4
6.-7. Helgi Birkir Þórisson, GSE +4
8. Þórður Rafn Gissurason, GR +6
9. Guðjón Henning Hilmarsson, GKG +7
10. Berglind Björnsdóttir, GR +8



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
