Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstur í mark í Þýskalandskappakstrinum sem fram fór á Nurburgring-brautinni í dag. Fernando Alonso á Ferrari varð annar en heimsmeistarinn og heimamaðurinn Sebastian Vettel þurfti að sætta sig við fjórða sætið.
Mark Webber á Red Bull sem hóf leik á ráspól náði ekki að leika eftir mótið 2009 þegar hann vann á þessari sögufrægu braut en Ástralinn endaði í þriðja sæti. Mótið í dag var það fyrsta sem Sebastian Vettel kemst ekki á verðlaunapall.
Mikil barátta var á milli Hamilton og Alonso um sigurinn en þegar ökumennirnir skiptu yfir á hörðu dekkin náði Hamilton að komast fram úr Alonso þegar hann var á þjónustusvæðinu og hélt öryggri forystu allt til loka.
Mögnuð barátta var einnig á milli Felipe Massa á Ferrari og Vettel um fjórða sætið en það hefði hjálpað öðrum ökumönnum gríðarlega hefði Vettel endað neðar en í fjórða.
Þegar einn hringur var eftir komu þeir báðir inn á þjónustusvæðið því þeir þurftu að skipta yfir á hörðu dekkin. Þar, eins og svo oft áður, gerði Ferrari-liðið mistök og kom Vettel út af þjónustusvæðinu á undan Massa og landaði fjórða sætinu örugglega.
Vettel hefur þó áfram örugga forystu í stigamótinu en hann er efstur með 216 stig. Mark Webber, liðsfélagi hans, hefur 139 stig, og næstur kemur Lewis Hamilton eftir sigurinn í dag með 134 stig. Fernando Alonso er svo fjórði með 130 stig.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013