Kylfingurinn Tiger Woods rak í gær kylfusveininn Steve Williams sem hefur burðast með golfsett stórstjörnunnar í tólf ár. Woods gaf út yfirlýsingu vegna breytinganna í gær en útskýrði ekki nánar hvers vegna hann myndi ekki óska eftir kröftum Williams framar.
„Ég þakka Steve innilega fyrir alla hans aðstoð en nú tel ég tíma til kominn að breyta til.“
Williams hefur unnið með kylfingnum Adam Scott undanfarna tvo mánuði á meðan Woods var frá vegna meiðsla.
„Stevie er frábær kylfusveinn og vinur og hefur átt stóran þátt í mörgum afreka minna. Ég óska honum alls hins besta í framtíðinni.“
Williams bar kylfur Tigers og ráðlagði honum í þrettán af fjórtán risamótssigrum kylfingsins undanfarin ár.
Hann kvaðst steinhissa á því að vera rekinn enda væru þeir góðir vinir. Það kom honum sérstaklega á óvart í ljósi þess sem á hefur gengið í einkalífi kylfingsins síðustu 18 mánuði eða svo þar sem Williams hefur vafalaust verið honum innan handar þegar framhjáhaldshneysklið kom upp.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
