ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Bjarnólfur ráðinn þjálfari Víkings

Tómas Ingi honum til aðstoðar
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:47 › 20. júlí 2011
Víkingar hafa haft litlu að fagna í Pepsi-deildinni í sumar.

Víkingar hafa haft litlu að fagna í Pepsi-deildinni í sumar. Mynd Tomasz Kolodziejski

Bjarnólfur Lárusson hefur verið ráðinn þjálfari Pepsi-deildar liðs Víkings en hann tekur við starfinu af Andra Marteinssyni sem sagt var upp störfum í gær.

Honum til aðstoðar verður Tómas Ingi Tómasson sem fyrr í sumar var rekinn sem þjálfari HK en Tómas sinnir einnig starfi aðstoðarþjálfara U21 árs landsliðs karla.

Bjarnólfur er uppalinn Vestmannaeyingur og lék 130 leiki fyrir ÍBV en einnig lék hann með KR. Bjarnólfur á að baki fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands og þá spilaði hann í 4 ár í Bretlandi með Hibernian, Walsall og Scunthorpe.

Undanfarin tvö ár hefur Bjarnólfur þjálfað 2. flokk Víkings með góðum árangri. Í fyrra kom hann flokknum upp úr B-riðli Íslandsmótsins og í dag er annar flokkur Víkings á toppi A-riðils.

„Sá árangur Bjarnólfs er hvatinn að því að stjórn knattspyrnudeildar hefur nú fengið hann til þess að taka við meistaraflokki félagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá Víkingum.

Víkingar hafa ekki unnið leik í Pepsi-deildinni frá því í fyrstu umferð þegar þeir lögðu hina nýliða deildarinnar, Þór, 2-0 í Víkinni. Fyrsti leikur Víkings verður einmitt gegn Þór fyrir norðan á sunnudaginn kemur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?