Peter Öqvist, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, valdi í dag tólf manna hóp sem mun taka þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer í Sundsvall í Svíþjóð um helgina.
Tveir nýliðar eru í hópnum, þeir Ólaf Ólafsson úr Grindavík og hinn 19 ára gamli Hauk Helga Pálsson sem leikur með Maryland háskólanum í Bandaríkjunum.
Jón Ólafur Jónsson, betur þekktur sem Nonni Mæju, er þrettándi maður og verður til taks komi eitthvað upp á.
Hópurinn var tilkynntur á blaðamannafundi í húsi íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal en við sama tækifæri var skrifað undir samstarfssamning við PEAK á Íslandi. Íslensku A-landsliðin leika því í Peak íþróttavörum í næstu verkefnum.
Fyrsti leikur Íslands á Norðurlandamótinu verður gegn gestgjöfum Svía á laugardaginn klukkan 16.15 að íslenskum tíma.
Leikið verður í íþróttahúsi Sundsvall en þjálfari félagsliðs bæjarins er landsliðsþjálfari Íslands, Peter Öqvist, og með liðinu leika þeir Hlynur Bæringsson, Jakob Örn Sigurðarson og nýlega fékk liðið Pavel Ermolinski.
Sundsvall varð sænskur meistari í vor þannig að okkar strákar eru hálfpartinn á heimavelli á mótinu.
Á sunnudaginn kemur mætir Ísland Finnlandi klukkan 14.00, leikið verður gegn Dönum á mánudagskvöldið klukkan 18.15 og lokaleikurinn verður gegn Noregi á miðvikudaginn kemur klukkan 16.00.
Hópurinn:
4 Brynjar Þór Björnsson - Jamtland, Svíþjóð
Hæð 190 cm - Fæddur '88 - 9 landsleikir
5 Haukur Helgi Pálsson - Maryland / Fjölnir
Hæð 198 cm - Fæddur '92 - Nýliði
6 Jakob Sigurðarson - Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 192 cm - Fæddur '82 - 44 landsleikir
7 Finnur Atli Magnússon - KR
Hæð 205 cm - Fæddur '85 - 2 landsleikir
8 Hlynur Bæringsson - Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 200 cm - Fæddur '82 - 47 landsleikir
9 Jón Arnór Stefánsson - CB Granada, Spáni
Hæð 196 cm - Fæddur '82 - 50 landsleikir
10 Helgi Már Magnússon - Uppsala, Svíþjóð
Hæð 197 cm - Fæddur '82 - 62 landsleikir
11 Ólafur Ólafsson - Grindavík
Hæð 190 cm - Fæddur '90 - Nýliði
12 Pavel Ermolinski - Sundsvall, Svíþjóð
Hæð 200 cm - Fæddur '87 - 14 landsleikir
13 Hörður Axel Vilhjálmsson - Mitteldeutscher BC, Þýskaland
Hæð 188 cm • Fæddur '88 • 16 landsleikir
14 Logi Gunnarsson - Solna, Svíþjóð
Hæð 190 cm • Fæddur '81 • 76 landsleikir
15 Sigurður Gunnar Þorsteinsson - Grindavík
Hæð 204 cm • Fæddur '88 • 21 landsleikur



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
