Andri Marteinsson, þjálfari Pepsi-deildar liðs Víkings, er hættur störfum hjá félaginu. Stjórn Víkings fór fram á það við Andra í dag að hann hætti sem þjálfari Víkings sem og aðstoðarmaður hans, Ólafur Ólafsson. Féllust þeir á það með hagsmuni félagsins að leiðarljósi að því kemur fram í fréttatilkynningu frá Víkingum.
Víkingum hefur gengið afleitlega í sumar en síðan liðið vann fyrsta leik sinn í Pepsi-deildinni gegn Þór hefur Víkingur ekki unnið leik í sumar ef undan er skilinn bikarleikur gegn 3. deildar liðið KV. Víkingur tapaði í gær gríðarlega mikilvægum sex stiga fallslag gegn Fram, 1-0.
Fram kemur á knattspyrnuvefnum fotbolti.net að Bjarnólfur Lárusson, þjálfari 2. flokks Víkings og fyrrverandi leikmaður ÍBV og KR, sé líklegur til að taka við starfinu með Tómas Inga Tómasson sem aðstoðarmann.
Fréttatilkynningin:
,,Í ljósi árangurs úrvalsdeildarliðs Víkings í undanförnum leikjum hefur stjórn knattspyrnudeildar félagsins farið þess á leit við Andra Marteinsson og Ólaf Ólafsson að þeir láti af störfum sem þjálfarar liðsins. Hafa Andri og Ólafur fallist á þessa beiðni með hagsmuni félagsins að leiðarljósi og úr er samkomulag um að þeir láti af störfum frá og með deginum í dag 19. júlí 2011.
Á þeim fimm mánuðum sem liðnir eru frá því Andri Marteinsson tók við störfum af Leifi Garðarssyni við erfiðar aðstæður hefur honum að mati stjórnar ekki tekist að ná nægilega góðum árangri með liðið. Það er því með trega í hjarta sem sú ákvörðun er í dag tekin að slíta þessu samstarfi.
Knattspyrnudeild Víkings þakkar Andra og Óla fyrir vel unnin störf og óskar þeim alls hins besta í framtíðinni.
Þriðjudagur 19.07.2011
Knattspyrnudeild Víkings"



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Fyrsta tap FH í Pepsi deildinni staðreynd
Tryggvi tókst á við bakkus
Meistararnir mörðu jafntefli
Fantasíuóðir fótboltaáhugamenn
„Náttúrulega bara hreint hneyksli“
