Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Norður-Írinn Darren Clarke bar sigur úr býtum á stærsta golfmóti ársins, opna breska meistaramótinu, sem lauk í dag. Clarke fór hringinn á Royal St. George's vellinum á pari vallarins og alla hringina fjóra á samtals fimm undir pari.
Þessi 42 ára gamli kylfingur hefur aldrei unnið risamót á ferlinum og það sem meira er hefur hann ekki verið á meðal tíu efstu á risamóti í heil tíu ár.
Í sigurlaun fær Darren Clarke 900.000 pund eða 170 milljónir króna. Það er mesta verðlaunafé sem veitt hefur verið á opna breska í langri sögu mótsins.
Bandaríkjamennirnir Dustin Johnson og Phil Mickelson urðu saman í öðru til þriðja sæti á tveimur undir pari. Daninn Thomas Bjorn var svo fjórði á einu höggi undir pari.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Fór holu í höggi eftir að hafa fleytt kúlunni á vatni
Kallaði Tiger þeldökkt fífl
Rory McIlroy fékk vel borgað í Sjanghæ
Athyglissjúkur áhorfandi grýtti pylsu í átt að Tiger
Ólafur úr leik á PGA mótaröðinni
