ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Klofningur vegna mögulegrar ráðningar Eyjólfs

„Að vísu gat hann ekkert með A-landsliðið í knattspyrnu,“ segir drullusokkur mýrarboltans
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:03 › 11. júlí 2011

Ákveðinn kjarni í stjórn Mýrarboltafélagsins hefur áhuga á að bjóða Eyjólfi Sverrissyni samning um að velja og þjálfa landslið Íslands í mýrarbolta. „Eyjólfur er drengur góður og hefur náð frábærum árangri með U-21 landslið Íslands í fótbolta. Hann er faglegur og jákvæður þjálfari sem hefur útlitið með sér. Að vísu gat hann ekkert með A-landsliðið í knattspyrnu, en engin rós er án þyrna,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson drullusokkur.

Í tilkynningu frá Mýrarboltafélagsins segir að stjórn félagsins muni skoða á næstu dögum hvort hún muni setja sig í samband við Eyjólf og bjóða honum tveggja ára samning sem þykir gott miðað við mann á hans aldri.

„Ég vil ekkert um málið segja,“ segir Jón Páll Hreinsson gjaldkeri Mýrarboltafélagsins. „Ef Jói Bæring ætlar að ráða þennan karl, er eins gott að hann hafi reddað peningum til að borga honum laun. Svo hefur þessi Eyvindur, eða hvað hann heitir, víst enga reynslu af því að þjálfa lið í íslensku deildinni.“

Ákvörðunar stjórnar Mýrarboltafélags Íslands er að vænta á næstu dögum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?