ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Alonso vann breska kappaksturinn

Vonbrigði hjá Bretunum á heimavelli
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:29 › 10. júlí 2011
Alonso tekur fram úr Vettel í dag.

Alonso tekur fram úr Vettel í dag. Mynd Reuters

Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari kom fyrstur í mark á Silverstone-brautinni í Bretlandi en þetta er fyrsti sigur hans á keppnistímabilinu. Heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull lenti í öðru sæti og liðsfélagi hans, Mark Webber, náði þriðja sæti.

Lítið gekk hjá heimamönnunum á brautinni í dag þó Lewis Hamilton á McLaren hafi barist hetjulega upp úr tíunda sæti í það fjórða. Hann var þó kominn í annað sætið á tímabili í keppninni.

Jenson Button á McLaren lenti í skelfilegu atviki þegar honum var hleypt að stað úr þjónustuhléi án þess að hægra framdekkið væri fast. Hann þurfti því að draga sig úr keppni rétt áður en henni lauk.

Nýliðinn Paul di Resta á Force India sem hóf keppnina sjötti á ráslínu og var í sjöunda sæti þegar keppnin var hálfnuð lenti einnig í hremmingum á þjónustusvæðinu þegar gleymdist að koma með rétt dekk undir bílinn og endaði hann í fimmtánda sæti.

Sebastian Vettel er samt sem áður langefstur í stigakeppninni með 204 stig en næstur kemur Mark Webber með 124. Fernando Alonso lyfti sér upp í þriðja sætið með 112 stig.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?