ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Leikmenn NBA settir í verkbann

Næsta leiktíð í óvissu - Adáendur aldrei ánægðari en deildin ekki arðbær
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
09:53 › 1. júlí 2011
David Stern framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar.

David Stern framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar. Mynd Reuters

Bandaríska körfuboltadeildin NBA setti leikmenn sína í verkbann í dag eftir að samningaviðræður leikmanna og eigenda liða í deildinni sigldu í strand. Gjá er á milli leikmanna og eigenda og er ekki talið að þeir muni ná samkomulagi á næstunni.
Talið er að þetta setji næstu leiktíð NBA-deildarinnar í mikla óvissa en leikmenn bandarísku ruðningsdeildarinnar NFL eru enn í verkbanni sem hófst í mars.

„Síðasta leiktíð var frábær þegar horft er til ánægju aðdáanda deildarinnar. En leiktíðin var þó ekki arðbær fyrir eigendur liðanna. Markmiðið er að gera deildina arðbæra og að hafa 30 lið sem geta öll keppt,“ sagði David Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar.

Leikmenn deildarinnar lögðu fram tilboð í gær sem hefði hækkað meðallaun þeirra upp í sjö milljónir dollara á sjötta ári samningsins. Talið er að eigendur og leikmenn setjist að samningaborði á næstu tveimur til þremur vikum.

Allur rekstur deildarinnar er í biðstöðu. Liðin hefðu mátt byrja að skipta leikmönnum í dag en ekkert verður af því. Þá hefur verið hætt við sumardeild NBA í Las Vegas í sumar og undirbúningsleikir í Evrópu voru aldrei settir á dagskrá.

Þá þurfa leikmenn að gera það upp við sig hvort þeir vilji gefa kost á sér í landsliðsverkefni til þess að komast inn á Ólympíuleikanna árið 2012 án þess að vera tryggðir af liðunum sínum vegna meiðsla.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?