Dirk Nowitzki var með hita og mjög slappur fyrir fjórða leik Dallas Mavericks og Miami Heat í NBA úrslitunum í nótt. Þrátt fyrir veikindin þá skoraði Þjóðverjinn ótrúlegi 10 af 21 stigi sínu í leiknum í fjórða leikhluta og leiddi sína menn til naums sigurs 86-83. Serían er nú jöfn 2-2 og orðið dagsljóst að þetta verður alveg rosaleg úrslitarimma á lokasprettinum.
James verður að skora
Jason Terry skoraði 17 stig fyrir Dallas, Shawn Marion 16 og Tyson Chandler bætti við 13 í leiknum í gær en auk þess að skora 21 stig með háan hita reif Dirk Nowitzki niður 11 fráköst og átti lokaskotið sem kláraði leikinn. Alvöru maður.
Hjá Miami Heat var Dwyane Wade stigahæstur með 32 stig og Chris Bosh bætti við 24 stigum. Það sem er hins vegar mikið áhyggjuefni fyrir Heat er að Lebron James skoraði bara 8 stig í öllum leiknum. Hann hitti bara úr 3 af 11 tilraunum sínum, engu þriggja stiga skoti og aðeins 2 af 4 vítaskotum í þær rúmlega 45 mínútur sem hann spilaði. Einn hans slakasti leikur í langan tíma og tölfræðin talar sínu máli. Í þeim átta leikjum sem Lebron James hefur skorað færri en 15 stig í leik í úrslitakeppninni þá tapar liðið hans. „Kóngurinn“ verður að gera betur.
Helstu tilþrifin úr leiknum í nótt má sjá hér.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
