ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Frækinn sigur Heat í Dallas

08:51 › 6. júní 2011
Lebron James skoraði aðeins 17 stig í leiknum en gaf 9 stoðsendingar og átti nokkrar risatroðslur í leiknum þar sem farin var leið eitt að körfunni og tuðrunni lúðrað niður af karlmennsku.

Lebron James skoraði aðeins 17 stig í leiknum en gaf 9 stoðsendingar og átti nokkrar risatroðslur í leiknum þar sem farin var leið eitt að körfunni og tuðrunni lúðrað niður af karlmennsku. Mynd: Reuters

  • Bosh átti silkimjúkt stökkskot í lokin sem tryggði Miami sigurinn.

    Bosh átti silkimjúkt stökkskot í lokin sem tryggði Miami sigurinn.Mynd: Reuters

  • Síðasti séns. Dirk fékk eitt tækifæri í lokin til að stela framlengingu en skotið geigaði.

    Síðasti séns. Dirk fékk eitt tækifæri í lokin til að stela framlengingu en skotið geigaði.Mynd: Reuters

Miami Heat vann frækinn sigur í þriðja leiknum í úrslitaseríunni gegn Dallas Mavericks í nótt og leiðir Miami-liðið nú seríuna 2-1.
Heat hélt velli í fjórða leikhluta þegar Dirk Nowitzki og félagar sóttu hart á heimavelli í frábærum körfuboltaleik.

Dwyane Wade skoraði 29 stig fyrir Heat og tók 11 fráköst en Miami-liðið leitaði til Chris Bosh (18 stig) á lokasekúndum leiksins til að tryggja þeim 88-86 sigur í lokinn.

Dirk Nowitzki (34 stig/ 11 fráköst) fékk einn lokaséns til að tryggja Dallas-mönnum framlengingu en frábær vörn frá Udonis Haslem á síðustu sekúndum leiksins þvingað Dirk í erfitt skot sem geigaði.

Tilþrifin úr leiknum má sjá hér



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?