Halldór Helgason, snjóbrettakappi frá Hörgárbyggð á Norðurlandi, er orðinn einn mesti afreksíþróttamaður Íslendinga. Þessi tvítugi piltur hefur ásamt bróður sínum Eika tekið snjóbrettaheiminn með trompi og eru þeir bræðurnir orðnir einir allra bestu snjóbrettamenn heims.
Draumurinn rættist
„Þetta er bara draumurinn,“ segir Halldór aðspurður um líf sitt. „Mig langaði alltaf til að verða atvinnumaður á snjóbretti. Það var takmarkið. Ég á stundum svolítið erfitt með að skilja að ég sé búinn að ná því. En fyrst ég er kominn þetta langt ætla ég bara að halda áfram og reyna að hafa eins gaman af þessu og ég mögulega get.“ En hvað sögðu foreldrarnir við þessum draumum og snjóbrettaskóla þar sem aðeins er lært þrjá daga í viku?
„Þau voru bara ánægð með þetta,“ segir Halldór og hlær við. „Þau hafa alltaf stutt okkur í einu og öllu. Mamma og pabbi sögðu alltaf við okkur bræðurna að þau myndu styðja okkur í hverju sem væri á meðan við færum ekki í neitt rugl.“ En foreldrarnir þurftu litlu til að tjalda við námið því ofan á allt saman var það frítt. „Námið var frítt. Eina sem við þurftum að borga var leigan á íbúðinni. Svo var matur og allt innifalið. Ég mæli hiklaust með þessum skóla,“ segir Halldór.
Einn launahæsti íþróttamaður Íslendinga
Ævintýralíf Halldórs þessa dagana er ekki byggt upp á núðlusúpum og harki. Hann fær vel greitt fyrir sín störf en samningur hans við Nike hljóðar upp á tíu milljónir króna á mánuði samkvæmt heimildum DV. Frá öðrum styrktaraðilum detta svo inn aðrar tvær þannig að heildarlaun hans á mánuði nema um tólf milljónum króna samkvæmt heimildum DV. Er hinn tvítugi Halldór því orðinn einn launahæsti íþróttamaður Íslendinga. Hann fékkst ekki til að ræða um launamál sín. „Ég vil ekki segja neitt um þetta. Ég verð bara að fá að segja: „No comment“.“
Þessi hógværi og hlédrægi piltur sagði þó: „Ég fæ borgað mánaðarlega. Fæ allt brettadót frítt og allt flug er borgað fyrir mig. Þetta er mjög þægilegt og því erfitt að kvarta. Svo er maður bara í fríi á sumrin. Samningurinn við Nike má þó eiga það að hann er mjög góður. Ég hef það mjög gott.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Annie Mist bætir tveimur heimsmetum í sarpinn
Hættir með kærustunni til að einbeita sér að Olympíuleikunum
Norskur sundkappi fannst látinn í sturtu
Afmyndað andlit eftir högg
Króatar sigruðu
