ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 9m/s S

Sjötti sigur Vettels

Er með 77 stiga forskot eftir átta keppnir
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:51 › 26. júní 2011
Vettel á ferð og flugi í Valencia.

Vettel á ferð og flugi í Valencia.

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Sebastian Vettel á Red Bull, kom fyrstur í mark í kappakstrinum í Valencia en þetta var sjötti sigur hans á keppnistímabilinu en aðeins eru búnar átta keppnir. Hann hóf keppnina á ráspól í sjöunda skiptið á tímabilinu.

Mark Webber, liðsfélagi Vettels, hóf leik annar en það var Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari sem hreppti silfursætið í Valencia. Webber varð þriðji, Hamilton fjórði og Felipe Massa á Ferrari, fimmti.

Vettel hefur nú unnið sex keppnir af átta og hefur 77 stiga forskot í stigamótinu á næsta mann sem er Bretinn Jenson Button. Red Bull-liðið hefur 89 stiga forskot á McLaren í stigakeppni bílasmiða.

Það sem meira er varð Vettel í dag fyrsti maðurinn til að vinna tvær keppnir á spænskri grundu á sama árinu en hann vann Spánarkappaksturinn í Barcelona fyrr á tímabilinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?