Scottie Pippen, sem lék á árum áður með gullaldarliði Chicago Bulls í NBA-deildinni, fann sig tilneyddan til að leiðrétta ummæli sem hann hafði um LeBron James, leikmann Miami Heat, og fyrrverandi liðsfélaga sinn, sem hann vann sex NBA-titla með, Michael Jordan.
Pippen lét hafa það eftir sér í gær að hann teldi Michael Jordan vera besta leikmann NBA sögunnar, þrátt fyrir ummæli sín um LeBron James í síðasta mánuði.
„Ummæli mín voru til þess fallin að hrósa LeBron sem leikmanni, en ekki að gera lítið úr Michael,“ sagði Pippen þegar hann talaði við unga íþróttaiðkenndur í Chicago. „Við vitum öll að hann(Michael) er besti leikmaðurinn sem hefur spilað körfubolta.“
Pippen bar LeBron og Jordan saman þegar Miami Heat sló Chicago Bulls út úr úrslitum austurdeildarinnar í síðasta mánuði. „Michael Jordan er örugglega besti skorarinn sem leikið hefur körfubolta,“ sagði Pippen í síðasta mánuði. „En ég get sagt að Lebron sé mögulega besti leikmaðurinn sem hefur spilað leikinn því hann er svo kröftugur sóknarleikmaður því hann getur ekki aðeins skorað að vild, hann gerir alla meðspilara sína virka í sókninni.“
Pippen segist hafa rætt við Jordan nokkrum sinnum eftir að hann lét þessi ummæli falla en hann segir að þeir séu ennþá góðir vinir. „Ég tala oft við Michael,“ sagði Pippen. „Það eru engin vandamál á milli mín og hans. Ég held að fjölmiðlar hafi gert of mikið úr þessu.“
Ummæli hans vöktu mikla athygli og fannst fólki hann vera gera lítið úr fyrrverandi liðsfélaga sínum. Hann segir þó að þetta hafi engin áhrif á sig. „Vitið þið hvað? Ég fór bara suður eftir og naut þess að hlusta ekki á fréttir eða að horfa á sjónvarp. Ég náði því ekki allri gagnrýninni sem ég fékk væntanlega fyrir þessi ummæli.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Sixers og Celtics mætast í sjöunda leik
Átta skotnir eftir sigur Thunder á Lakers
Þreyttir LeBron og Wade gátu lítið gegn vörn Pacers
Thunder niðurlægði Lakers
Njarðvík verður aðeins fyrsta fórnarlamb Grindavíkur
